Markaðsstofa Suðurlands vekur athygli á því að skráning er hafin á MANNAMÓT 2019. Viðburðurinn hefur verið vel sóttur síðustu ár, en nú hefur verið ákveðið að gera breytingu á staðsetningu hans. Að þessu sinni verður Mannamót haldið Kórnum í Kópavogi, fimmtudaginn 17. janúar, 2019.
Tilgangur Mannamóts er að bjóða fram vettvang fyrir ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni til að kynna sig og sína starfsemi fyrir ferðaþjónustufyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu, og skapa með því aukin tengsl innan ferðaþjónustunnar í heild. Síðustu ár hafa sýnendur verið fleiri en 200 í hvert skipti og gestir yfir 700 talsins.
Nánari upplýsingar um Mannamót má sjá með því að smella hér.
Sýnendur
Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Þátttökugjald er 17.500 krónur, plús virðisaukaskattur. Skráningu lýkur þann 10. janúar 2019.
Hér er hægt að skrá sig sem sýnanda.
Gestir
Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.