Frá því elstu menn muna hafa börn í Vestmannaeyjum bjargað þeim lundapysjum sem leita í ljósin í bænum eftir að skyggja tekur. Áður en pysjunum er sleppt er farið með þær í pysjueftirlitið í Sæheimum þar sem þær eru vigtaðar og vængmældar. Í ár var komið með 5.589 pysjur í pysjueftirlitið og er það mesti fjöldi frá upphafi eftirlitsins en það hefur verið starfrækt frá árinu 2003. Nú hafa þessar björgunaraðgerðir barna í Vestmannaeyjum vakið athygli BBC NEWS.