Taflfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að halda atskákmót laugardaginn 11. maí 2019 til minningar um Bergvin Oddsson – Bedda á Glófaxa – skipstjóra og útvegsmann í Vestmannaeyjum, í samstarfi við fjölskyldu hans. Bergvin féll frá 22. sept. sl. 75 ára að aldri. Bergvin tók virkan þátt í starfsemi TV fljótlega eftir að fjölskylda hans flutti til Eyja árið 1964 og var mjög liðtækur skákmaður og tók þátt í mörgum skákmótum hjá félaginu. Eftir að hann fór í útgerð á Glófaxa Ve. nokkru eftir eldgosið á Heimaey 1973 dró nokkuð úr þáttöku hans. En Beddi leiddi í mörg ár skáksveit sjómanna í keppni þeirra við landmenn á Sjómannadaginn. Bergvin var til margra áratuga einn af öflugustu bakhjörlum Taflfélags Vestmannaeyja.
Bergvini og minningu hans til heiðurs varð að ráði að efna til sérstaks skákmóts í samstarfi við fjölskyldu hans og til styrktar skáklifinu í Eyjum, laugardaginn 11. maí 2019, gamla lokadaginn.
Þekkingarsetur Vestmannaeyja leggur til húsnæði svo minningarmótið verður á 2. hæð við Ægisgötu 2 og hefst það kl. 12.00 á hádegi. Tefldar verða 8 umferðir eftir hinu vinsæla atskákformi, 15. mín. á skák og + 5 sek á leik. Eftir fjórar umferðir verður tekið kaffihlé og síðan taka við aðrar fjórar umferðir. Reiknað er með að mótinu ljúki um kl. 19.00 um kvöldið, úrslit kynnt og veitt vegleg verðlaun. Fyrstu verðlaun verða 200 þús. kr., 2. verðlaun 125 þús. kr. og 3ju verðlaun 75 þús. kr. Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands verður mótsstjóri. Ekkert mótsgjald og allir velkomnir.
Skráning á Beddamótið er á skák.is