Aðalfundur Þekkingarseturs Vestmannaeyja var haldinn 30. apríl 2015. Stjórnarformaður fór yfir skýrslu stjórnar og störf hennar á árinu.
Kom hann sérstaklega inn á hugmyndir sem Vestmannaeyjabær, í samstarfi við Þekkingarsetrið, er að vinna að í tengslum uppbyggingu á nýrri aðstöðu fyrir Setrið. Jafnframt var farið yfir þá vinnu sem er hafin við að setja á laggirnar háskólanám í líftækni og nýsköpun í sjávarútvegi.
Rekstur Þekkingarsetursins gekk þokkalega á árinu en reksturinn skilaði hagnaði sem nemur 5.2 milljónum. Handbært fé frá rekstri jókst um 7,6 milljónir og var handbært fé í lok árs 61,3 milljónir. Eignir í lok árs 2014 námu 106 milljónum en langtímaskuldbindingar 58,7 milljónir.
Ársskýrsla ÞSV vegna 2014: www.setur.webplus.net