Sérfræðingur í friðlandi Surtseyjar
Umsóknarfrestur
27.02.2020 til 16.03.2020
Inngangur
Umhverfisstofnun leitar að sérfræðingi um friðlandið Surtsey. Starfið felur í sér umsjón með friðlandinu og heimsminjastaðnum Surtsey. Í boði er krefjandi starf fyrir sérfræðing með þekkingu á umhverfisvernd í öflugt teymi sérfræðinga þar sem lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu og víðtæka samvinnu. Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileika til að vera leiðandi á sínu fagsviði.
Helstu verkefni og ábyrgð
– Umsjón með friðlandinu og heimsminjastaðnum Surtsey. – Gerð áhrifamats fyrir athafnir innan friðlýstra svæða – Þáttaka í gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir friðlýst svæði – Umsjón með sýningu um Surtsey í Eldheimum – Umsjón og skipulag landvörslu á tilteknum friðlýstum svæðum á Suðurlandi
Hæfniskröfur
– Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem í jarðfræði, náttúrulandfræði, líffræði eða umhverfis-og auðlindafræði. Framhaldsmenntun er kostur. – Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd. – Þekking á opinberri stjórnsýslu og almennum rekstri. – Reynsla af störfum landvarða og/eða landvarðarréttindi. – Reynsla af miðlun upplýsinga og fræðslu til mismunandi hópa. – Þekking á friðlandinu. – Kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli. – Samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskipum.
Tengiliðir
Ólafur Arnar Jónsson – olafurj@umhverfisstofnun.is – 5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem – thoram@ust.is – 5912000
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Starfsaðstaða sérfræðingsins er í Vestmannaeyjum Umsóknarfrestur um starfið er til 16. mars 2020.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2020