Nýsköpun í sjávarútvegi Norrænt samstarf
Nordic Marine Innovation Programme 2.0
Nordic Innovation, í samstarfi við stofnanir á Norðurlöndum, auglýsir eftir umsóknum um styrki til nýsköpunarverkefna í sjávarútvegi.
Umsóknafrestur er í tveimur þrepum og er sá fyrri til 15. september 2014 og er íslenskum fyrirtækjum og stofnunum boðin þátttaka.
Tækniþróunarsjóður fjármagnar íslenska hlutann en Nordic Innovation leggur til viðbótarfjármagn.
Verkefni þurfa að vera með þátttöku a.m.k. eins fyrirtækis og uppfylla skilyrði Tækniþróunarsjóðs um verkefnisstyrki, sjá hér.
Nánari upplýsingar um styrkina og umsóknarferlið má nálgast á vefsíðu Nordic Innovation, sjá hér.
Tengiliðir á Íslandi eru:
Sigurður Björnsson, Rannís – sigurdur.bjornsson@rannis.is
Lýður Skúli Erlendsson, Rannís – lydur.skuli.erlendsson@rannis.is
Arnór Snæbjörnsson, ANR – arnor.snaebjornsson@anr.is