Verkefni starfsmanna Þekkingarsetursins eru fjölbreytt. Hér er Georg Skæringsson að vinna við viðgerðir á sundlaug Vestmannaeyjabæjar með Stebba í Eyjablikk. Vignir Svavarsson gefur þeim merki um að þeir eru búnir að vera of lengi að þessu og eiga að drífa sig upp úr. Það er ánægjulegt að segja frá því að ef þessi bráðabirgða viðgerð heppnast verður hægt fresta lokun laugarinnar fram yfir þjóðhátíð en þá þarf að tæma laugina og gera við flísalögn sem getur tekið allt að 10 daga.