Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Arnar Sigurmundsson undirrita samning milli ráðuneytisins og Þekkingarseturs Vestmannaeyja.
Þann 9. desember s.l. undirritaði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra samninga við Háskólasetur Vestfjarða, Háskólafélag Suðurlands – þekkingarnet á Suðurlandi og Þekkingarsetur Vestmannaeyja um starfsemi og þjónustu þessara stofnana.
Meginmarkmið samninganna er að bæta aðgengi íbúa að námi og stuðla að auknu samstarfi og samþættingu menntunar, rannsókna, fræðastarfs og atvinnumála. Setrunum er m.a. ætlað að veita nemendum á framhaldsskóla- og háskólastigi þjónustu með miðlun fjarfundakennslu, fjarprófahaldi og með því að halda úti les- og vinnuaðstöðu fyrir fjarnema. Jafnframt að þróa námsleiðir og/eða námskeið á háskólastigi í samstarfi við háskóla, sérfræðinga og önnur þekkingarsetur á svæðinu. Þá er setrunum gert að hafa frumkvæði að rannsóknar- og þróunarverkefnum sem byggjast á sérstöðu í náttúrufari, atvinnulífi og menningu svæðanna og eru til þess fallin að efla byggð.
Að lokum er gert ráð fyrir að setrin taki virkan þátt í faglegri umræðu um þróun rannsókna og háskólastarfs. Vinna með sérfræðingum og þekkingarsetrum hvert á sínu svæði að þróun verkefna og stefnumótun háskóla- og rannsóknarstarfs.
Reglulegt samráð verður milli ráðuneytisins og setranna um að markmiðum samninganna sé framfylgt. Slík samskipti eru í samræmi við stefnu mennta- og menningarmálaráðuneytis um að auka upplýsingagjöf um þau verkefni sem það styður við (Unnið upp úr frétt Morgunblaðsins frá 10. desember 2011).