Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) auglýsa laust til umsóknar starf verkefnastjóra með áherslu á umhverfismál. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða, við þróun og framkvæmd fræðslu- og kynningaráætlunar um umhverfismál með sérstakri áherslu á úrgangsforvarnir.
Verkefnastjóri mun vinna í nánu samstarfi með sveitarfélögum á Suðurlandi, sorphirðuaðilum og Umhverfisstofnun (Umhverfis- og orkustofnun frá 1. janúar nk.) ásamt því að starfa náið með umhverfissérfræðingi og kynningarfulltrúa SASS. Starfið er hluti af aukinni áherslu á umhverfismál hjá sveitarfélögunum á Suðurlandi með stuðningi umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis.
Hlutverk verkefnastjóra:
- Útbúa fræðslu-, samskipta- og kynningaráætlun á sviði umhverfismála.
- Þróun og umsjón viðburða.
- Verkefnaþróun og fjármögnun verkefna í samstarfi við hagaðila.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun og/eða kynningarmálum er kostur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
- Góð tölvukunnátta og færni í samskiptum, bæði í ræðu og riti.
- Þekking á sunnlensku samfélagi og áhugi á að efla tengslanet.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku.
Kjör og starfsaðstæður:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Starfshlutfall er 100% og starfsaðstaða verður á Suðurlandi. Ráðningartímabilið er 12 mánuðir með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur og ferli:
Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2024. Umsókn skal skilað stafrænt á Alfreð (www.alfred.is) og henni skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni sinni til að takast á við starfið. Umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir:
- Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri þróunarsviðs SASS (thordur@sass.is), sími: 692-9030.