Á fimm metra dýpi í Klettsvíkinni í Vestmannaeyjum er hitasíriti sem skráir stöðugar hitasveiflur. Síritinn er því miður ekki beintengdur og fyllir því innra minnið á ákveðnum tímum og þarf þá að skipta um mæli. Í síðustu viku var farið og skipt um mæli og voru nokkrar myndir teknar við það tækifæri, myndirnar má sjá á myndasafninu.
Hitamælingar Hafró í Vestmannaeyjum byrjuðu í lok árs 1998 og er því til rúmlega 11 ára samfeld mælingasería. Hægt er að skoða niðurstöður mælinga á vef Hafrannsóknastofnunarinnar eða með því að fylgja þessari krækju: http://www.hafro.is/Sjora/ – velja þar > „Umhverfisgögn“ > og síðan > „Sjávarhitamælingar við strendur Íslands“ og loks > „Vestmannaeyjar“.