Málþing um auðlindastýringu og fyrningarleið ríkisstjórnarinnar verður haldið í Höllinni í Vestmannaeyjum þann 4. júní 2009.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.setur.is/radstefnur
Allir þeir sem láta sig sjávarútvegsmál varða eru hvattir til að koma. Miklu máli skiptir að Eyjamenn fjölmenni í Höllina og komi sjónarmiðum sínum á framfæri.
Málþingið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 17:00.