Erindi – 19. mars, 2018
Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands var með opinn kynningafund um ferðamál í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.
Þar voru kynntar helstu áherslur og verkefni Markaðsstofunnar fyrir aðilum í ferðaþjónustu í Eyjum, en Vestmannaeyjar hafa skrifað undir samstarfssamning við Markaðsstofuna um m.a. markaðssetningu og kynningu á áfangastaðnum/sveitarfélaginu fyrir ferðamönnum.
Fundurinn var jafnframt liður mánaðarlegum fundum sem fyrirhugað er að halda um ferðamál í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.
Glærur af fundinum eru aðgengilegar hér:
OPNA GLÆRUR