Alþjóðlegt nám í Eyjum Fab Academy
Nú er hafin kennsla á ný í Fab Academy, alþjóðlegu námi þar sem kennd eru grundvallaratriði í stafrænni framleiðslutækni. Námið fer fram í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum en nú er hægt að sækja þetta nám á 13 stöðum víðsvegar um heiminn.
Enn er möguleiki á að bæta við námsmönnum í hópinn í Eyjum en gera má ráð fyrir um 20 klst á viku sem fer í námið.
Námið felur í sér þekkingaröflun og þjálfun í notkun á stafrænni framleiðslutækni. Farið er yfir notkun á tvívíddar og þrívíddar hönnunartólum, framleiðslu og frumgerðarsmíði. Tekið er meðal annars fyrir eftirfarandi:
* tölvustýrður skurður með fræsivélum, laserskurðarvélum og vinylskera
* hönnun og framleiðsla á rafrásum og gerð örtölva
* notkun á tölvustýrðum framleiðslutólum, mótagerð og mótasteypu
* verkefnastjórnun, þrívíddarskönnun, þrívíddarprentun og þrívíddarfræsingu
* mismunandi skynjaratækni, forritun örtölva og tenging örtölva við netkerfi
* gerð tengingu örtölva við mótóra
* gerð tækjabúnaðar vegna örrar frumgerðarsmíði
Kennslan er leidd áfram af dr. Neil Gershenfeld prófessor hjá MIT og hófst hún miðvikudaginn 19.janúar 2011 og stendur til 1.júní 2011. Námið er krefjandi en jafnframt verulega gefandi og nýtist sérstaklega vel fyrir þá sem starfa eða hyggjast starfa í tækniiðnaði framtíðarinnar.
Námið er boði á Spáni, í Bandaríkjunum, Suður Afríku, Indlandi, Hollandi, Kenýa,Perú, Noregi og á Íslandi (Vestmannaeyjum).
Áhugasamir geta haft samband við undirritaðan frosti@nmi.is eða í síma 481 3355.