Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir tvo flokka:
A) Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna.
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnum. Hver styrkur getur numið allt að tólf milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en styrkumsókn er afgreidd.
B) Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða til að undirbúa stærri verkefn á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð getur numið allt að þremur milljónum króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða
Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrka fjárfestingar.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu sjóðsins