Beluga Operation Company ehf.
BOC er nýtt félag stofnað til að halda utan um rekstur á griðarstað fyrir mjaldra í Klettsvík og í stórri hvíldarlaug í nýbyggingu við Ægisgötu 2. Starfsemin er ekki hagnaðardrifin (nonprofit) og rekin undir nafni SeaLife Trust, griðarstaður fyrir mjaldra. Samhliða griðarstaðnum rekur SeaLife nýtt safn með gestastofu fyrir mjaldrana, aðhlynningaraðstöðu fyrir lunda, pysjur og ýmsa sjófugla og myndarlegt náttúrugripa- og sjávardýrasafn.
Starfsemin fer fram annarsvega út í Klettsvík og hinsvegar hér á jarðhæð Ægisgötu 2 og í nýrri laug sunnan við Fiskiðjuhúsið.
Unnið hefur verið að verkefninu allt frá árinu 2016 og er áformað að safnið opni í mars 2019.
Audrey Padgett
Ægisgata 2
900 Vestmannaeyjum
Sími : 620-2724
Netfang: Audrey.Padgett@sealifetrust.com