Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um útgáfu-, þýðinga-, ferða- og kynningaþýðingastyrki en næsti umsóknarfrestur fyrir þessa styrki rennur út 15. mars 2011.
Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást á heimasíðu Bókmenntasjóðs, www.bok.is , en einnig á skrifstofu sjóðsins. Frekari upplýsingar fást á heimasíðunni en einnig á netfanginu bok@bok.is og í síma 552 8500.
Bókmenntasjóður
Austurstræti 18
101 Reykjavík