Safnahelgi hjá Sagnheimum helgina, 4.nóvember til 6.nóvember.
Laugardaginn 5. nóvember kl. 14 opnar sýningin :
,,Oddgeir Kristjánsson – minningin og tónlistin lifir.
Sett hefur verið upp sýning með hljóðfærum, munum, nótum, skjölum og myndum til að varpa ljósi á líf og starf þessa fjölhæfa listamanns.
M.a. verða sýndar 200 Vestmannaeyjamyndir frá árunum 1957-1965 sem Oddgeir tók.
Við opnunina flytur Hafsteinn Þórólfsson og Tríó Glóðir nokkur lög úr smiðju Oddgeirs.
Sýningin er unnin í samvinnu við fjölskyldu Oddgeirs Kristjánssonar og Skjalasafn.