Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir styrkjum í tengslum við menningarverkefni og atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Suðurlandi.
Starfandi fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að sækja um í nýsköpunarverkefni.
Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands er:
- Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi
- Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
- Að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðni aukandi verkefni á Suðurlandi
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is. Einnig er hægt að fá aðstoð og leiðbeiningar hjá Þekkingarsetrinu.
Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna á heimasíðu SASS http://www.sass.is en allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum þann vef. Umsóknarfrestur er til klukkan 12:00 þann 13. mars nk.