Mjög góð þátttaka var miðvikudaginn 28. apríl í hádegiserindi um sjávarútvegsmál í Þekkingarsetrinu. 40 manns tóku þátt þegar Hörður Sævaldsson, Lektor við Sjávarútvegsfræðibraut Háskólans á Akureyri hélt erindi sem bar yfirskriftina: Íslenskur sjávarútvegur í hnotskurn – Raunveruleikinn og áskoranir
Frá upphafi árs 2018 hefur Þekkingarsetur Vestmannaeyja staðið fyrir mánaðarlegum erindum um sjávarútveg. Erindi Harðar var hið 24 í röðinni. Fyrri erindi er hægt að sjá á heimsíðu Þekkingarseturs Vestmannaeyja hér. Erindin hafa bæði farið fram í Þekkingarsetrinu sem og á Zoom. Erindin á Zoom hafa verið öllum opin. Erindin eru mjög fjölbreytt og eiga erindi við fjölbreyttan hóp fólks sem starfar í sjávarútvegi og tengdum greinum.
Markmiðið með þessum erindum okkar er að hrista fólk í sjávarútvegi saman og draga fram áhugaverða hluti sem tengjast sjávarútvegi, þannig að fólk taki eitthvað nýtt með sér af erindunum. Í senn er þetta umræðu-, félags- og fræðsluvettvangur.
Hörður byrjaði erindi sitt á að kynna til leiks ýmislegt fræðsluefni sem hann, í samstarfi við ýmsa aðila, hefur komið að gerð á, á síðustu árum. Eitthvað sem áhugasamt fólk um sjávarútveg ætti ekki að láta fram hjá sér fara. Hörður kom víða við í erindi sínu. Hann fór yfir virðiskeðju íslensks sjávarútvegs og helstu markaðssvæði sem íslenskar sjávarafurðir eru seldar til. Hann fór yfir helstu veiðiþjóðir heims og stöðu Íslands meðal þeirra og framboð sjávarfangs á heimsvísu út frá fjölmörgum breytum. Hörður fjallaði um ýmsar áskoranir í virðiskeðju uppsjávar- og botnfiska, þar sem hann fór m.a. yfir samræmingu veiða, vinnslu og markaða. Mannfjöldi og þéttbýlisvæðing var nokkuð til umræðu sem Hörður m.a. samtvinnaði við umræðu um prótein úr sjávarfangi sem kemur úr sjávardýraeldi. Hörður fór einnig yfir samkeppni á alþjóðamörkuðum og hvaða áskoranir Íslendingar standa frammi fyrir á erlendum mörkuðum. Í lokin tók Hörður efnið saman í áhugaverðri samantekt.
Þegar Hörður hafði lokið máli sínu þá svaraði hann nokkrum spurningum. Því miður þurftum við að hætta umræðunni kl. 13, en sjálfsagt hefði verið hægt að ræða málið meira enda málefnið áhugavert.
Myndupptaka af erindinu er hér
Glærur sem Hörður notaði í erindi sínu eru hér
Fiskifréttur fjölluðu um erindið – sjá hér
Við viljum þakka Herði fyrir áhugavert erindi og fyrir að leggja sitt af mörkum inn í umræðuna.
Þeir sem vilja fá tilkynningar um erindin, s.s. áminningar og samantektir geta sent tölvupóst á hrafn@setur.is og verður viðkomandi þá bætt á póstlista með þessu efni.
Næsta erindi er fyrirhugað í maí og verður það auglýst fljótlega