Kapteinn Kohl
-Sýslumaðurinn sem breytti sögu Vestmannaeyja
Sumardaginn fyrsta, 25. apríl nk., verður þess minnst að þá eru 160 ár liðin frá því kapteinn Kohl var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum.
Skansinn kl. 14:00
Arnar Sigurmundsson rekur tengsl Kohls við Skansinn og Landlyst.
Lúðrasveitin flytur hersöng Kohls.
Ásmundur Pálsson skýtur af fallbyssu.
Haldið fylktu liðið undir trommuslætti upp í Safnahús.
Safnahús kl. 14:45
Karl Gauti Hjaltason: Frá forneskju til framfara – Hvernig kapteinn Kohl breytti tíðarandanum í Eyjum 1853 1860.
Óskar Guðmundsson: Skyggnst í kringum kaptein Kohl og dálítið um niðja hans.
Að lokinni dagskrá verður haldið út í kirkjugarð og lagður blómsveigur á leiði Kohls í virðingar og þakklætisskyni.
Hægt er að taka þátt í allri dagskránni eða hluta hennar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskráin er styrkt af menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja og Visku.