Fimmtudaginn 28. nóvember kl. 12:00-13:00 í Norræna húsinu.
Loftslagssjóður er nýr samkeppnissjóður sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra og hefur ráðherra falið Rannís umsjón með honum.
Hlutverk Loftslagssjóðs er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Umsóknir um styrki eru metnar út frá hlutverki og tilgangi sjóðsins og áherslum stjórnar. Hægt er að kynna sér sjóðinn nánar hér.
Á kynningarfundinum 28. nóvember verða áherslur fyrir fyrstu úthlutun kynntar sem og umsóknarferli.
Dagskrá:
- Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
- Áherslur stjórnar: Hildur Knútsdóttir, formaður stjórnar
- Handbók sjóðsins, umsóknarkerfi og faglegt matsferli: Ása Guðrún Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á léttan hádegisverð fyrir fundinn.
Streymt verður frá fundinum.
Allir velkomnir, en gestir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig eigi síðar en miðvikudaginn 27. nóvember: