Í dag fengum við heimsókn frá krökkunum úr leikskólanum Sóla sem fannst afarspennandi að koma og skoða allt sem er hér á hæðinni hjá Þekkingarsetrinu. Mest fannst þeim spennandi að heyra um komu hvalanna Litlu Hvít og Litlu Grá. Þau byrjuð að labba um og skoða allar skrifstofur sem eru hér og var mest spennandi að skoða rannsóknastofuna hjá honum Simma, framkvæmdastjóra hjá Rannsóknaþjónustu Vestmannaeyja. Þar fengu þau að skoða og halda á loðnu, eins fengu þau að þefa af fiskimjöli sem þeim fannst ekkert sérstaklega góð lykt af. Eftir skoðunaferðina fengu þau að setjast niður inni í einu fundarherbergi sem heitir Heimaklettur þar sem þau fengu safa , piparkökur og sleikjó sem vakti mikla lukku. Páll Marvin, framkvæmdastjóri Þekkingasetursins, kynnti fyrir þeim komu hvalana og sýndi þeim myndband af hvar þeir munu vera og hversu stríðnir þeir geta verið enda skemmtilegir hvalir væntanlegir. Eins fengu þau að sjá uppstoppaða lunda sem þau pældu mikið í og spurðu allskonar spurninga.
Þökkum við leikskólanum Sóla kærlega fyrir skemmtilega heimsókn.