Erindi – 24. apríl 2019
Virkjum tækifærin í ferðaþjónustu
Miðvikudaginn 24. apríl hélt Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans erindi í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Erindi Kristínar fjallaði um Íslenska Ferðaklasann og tækifæri innan ferðaþjónustunnar. Íslenski Ferðaklasinn er vettvangur ólíkra fyrirtækja, stofnanna og opinberra aðila sem saman hafa það markmið að efla og styrkja ferðaþjónustu til framtíðar. Helsta hlutverk klasans er að efla samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun í ferðaþjónustu. Góð mæting var á erindið og eftir erindið fundaði Kristín með stjórn Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja. Erindinu var varpað beint á fésbókarsíðu Þekkingarseturs Vestmannaeyja og er hægt að nálgast erindið þar.
Erindi Ástu Kristínar má nálgast á Facebook síðu Þekkingarseturs Vestmnnaeyja: Íslenski Ferðaklasinn: Virkjum tækifærin í ferðaþjónustu.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska Ferðaklasans