Þekkingarsetur Vestmannaeyja fær 5 milljón króna styrk úr Lóunni, nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina fyrir verkefnið „Veiðar og vinnsla á rauðátu við Vestmannaeyjar“.
Hér er verkefni sem snýst um að kanna möguleika á veiðum og vinnslu á rauðátu við suðurströnd landsins.
Talsverðar rannsóknir hafa verið stundaðar síðustu tvö ár í svokölluðu Háfadjúpi og ætlunin á þessu ári að skala þessar rannsóknir upp með búnaði sem tekinn verður á leigu frá Zooca (Calanus AS).
25 verkefni hlutu styrk
Fram kemur í tilkynningu frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu að í ár hljóti 25 verkefni styrk úr Lóunni, nýsköpunarstyrk fyrir landsbyggðina. Hlutverk Lóunnar er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni á forsendum svæðanna sjálfra. Í ár var sérstaklega horft til verkefna sem komin eru af byrjunarstigi og tengjast samfélagslegum áskorunum á borð við loftslagsmál, sjálfbærni í heilbrigðis- og menntamálum og sjálfbærni í matvælaframleiðslu.
Heildarfjárhæð úr Lóu 2023 er líkt og árin áður 100 milljónir króna.
Alls bárust alls 97 umsóknir og voru þær á fjölbreyttum sviðum og viðfangsefni þeirra ólík, allt frá hugmyndum á frumstigi til stærri verkefna sem komin eru vel á veg.
Sem dæmi um verkefni sem hljóta styrk í ár eru áburðarframleiðsla, þróun matvöru úr þangi og sjávarþara á Vestfjörðum, uppbygging sjálfbærar matvælaframleiðslu á Austurlandi, þróun og vinnsla bioplasts úr hampi á Norðurlandi Eystra og samfélagsverkefnis um að nýta rafíþróttir til að efla færni á vinnumarkaði á Norðurlandi.
Verkefni í öllum landshlutum hlutu styrk og kynjahlutfall er nokkuð jafnt.