NATA auglýsir eftir styrkjum
Auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Í samræmi við áherslubreytingu sem nýr samningur landanna kveður á um er nú hægt að sækja um styrki til tvenns konar verkefna. Annars vegar verkefna í ferðaþjónustu, eins og verið hefur, og hins vegar ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.
Í samræmi við áherslubreytingu sem nýr samningur landanna kveður á um er nú hægt að sækja um styrki til tvenns konar verkefna. Annars vegar verkefna í ferðaþjónustu, eins og verið hefur, og hins vegar ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.
Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur og skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.
- Til markaðssetningar
- Til nýsköpunar- og vöruþróunar..
- Í kynnisferðir á milli ferðaþjónustufyrirtækja
- Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar.
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:
- Verkefnishugmyndar og gæða umsóknarinnar
- Nýnæmis verkefnisins
- Markaðstengingar
- Kostnaðaráætlunar, fjármögnunar
- Samfélagslegs gildis
Styrkir vegna kynnis- og námsferða
Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Því er stefnt að því að ráðstafa 25% af samningnum í slíka styrki. Ferðaþjónustuverkefni eru þó enn sem fyrr þungamiðjan í samningnum.
Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur og hvert verkefni fær að hámarki 20.000 danskar krónur í heildarstyrk.Samskipti skóla – árganga, bekkja – ganga að öðru jöfnu fyrir við mat á umsóknum.
Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:
- Skóla
- Íþróttahópa
- Tónlistarhópa
- Annars menningarsamstarfs
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða:
- Verkefnishugmynd og gæði umsóknar
- Nýnæmi verkefnisins
- Tilgangur ferðar
- Gagnkvæm tengsl
- Kostnaðaráætlun, fjármögnun
- Ávinningur af verkefninu
Hvar er hægt að sækja um?
Allar umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku á þar til gerðum eyðublöðum (á word-formi) sem nálgast má hér að neðan. Best er að byrja á að vista eyðublöðin á eigin tölvu áður en útfylling hefst.
Umsóknir sendist til
Óskað er eftir að skannaðar umsóknir með undirskrift verði sendar í tölvupósti á netfangið: skraning@ferdamalastofa.is
Einnig er hægt að senda útfyllt eyðublöð í pósti til:
NATA
c/o Ferðamálastofa
Geirsgata 9
101 Reykjavík
Skilafrestur
Lokafrestur til að skila umsókn er 13. mars 2011. Svör við umsóknum verða send umsækjendum eigi síðar en 20. apríl næstkomandi