Í ljósi aukins mikilvægis norræns vísindasamstarfs og komu framkvæmdastjóra NordForsk til landsins hefur Rannís í samvinnu við NordForsk ákveðið að slá upp stuttum kynningarfundi þar sem fjallað verður um styrkjamöguleika á vegum NordForsk og mikilvægi norræns vísindasamstarfs. Einnig verður kynning á NORDRESS, nýju Öndvegissetri á náttúruvá og öryggi samfélaga en setrið er leitt af Íslendingum og hlaut nýlega 420 milljóna rannsóknastyrk frá NordForsk.
Kynningin verður haldin að Grand Hótel, Reykjavík Háteigi B miðvikudaginn 27. ágúst kl. 12.00 13.30
Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér.
1) Mikilvægi norræns vísindasamstarfs.
– Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar V&T og stjórnarmeðlimur NordForsk.
2) Styrkjamöguleikar á vegum NordForsk.
– Gunnel Gustafsson, framkvæmdastjóri NordForsk.
3) NORDRESS – Kynning á nýju Öndvegissetri um náttúruvá og öryggi samfélaga, sem styrkt er af Nordforsk.
– Guðrún Gísladóttir, prófessor / Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða.
4) Fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís.