Margt er nú á annan veg í samfélaginu en áður, vegna Covid 19 og aðgerða til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Lundapysjur láta slíkt ekkert á sig fá og næstu vikur eigum við von á fjölda lundapysja í bænum okkar og fjölda björgunarfólks sem kemur þeim til hjálpar. Fyrsta pysjan lét sjá sig í bænum um síðustu helgi og því ljóst að fjörið er að byrja.
Undanfarin 17 ár hefur verið starfrækt hið svokallaða pysjueftirlit en Margrét Lilja Magnúsdóttir hefur komið að eftirlitinu síðan 2007. „Það hefur hingað til gengið út á það að þeir sem finna pysjur í bænum koma með þær til okkar í vigtun og vængmælingu áður þeim er sleppt á haf út. Núna eru breyttir tímar með samkomutakmörkunum. Við getum ekki tryggt tveggja metra regluna við pysjueftirlitið og til að vernda bæði pysjubjörgunarfólk og starfsmenn, getur pysjueftirlitið ekki farið fram með óbreyttu sniði að þessu sinni.“
Á vefsíðunni www.lundi.is er að finna skráningarblað þar sem hægt er að setja inn fjölda pysja, þyngd, fundarstaði og nöfn þeirra sem þær finna. Einnig verður hægt að hlaða upp myndum með hverri skráningu. „Kannski hafa ekki allir tíma eða aðstöðu til að vigta pysjurnar, en í þeim tilvikum er þó gott að fá hinar upplýsingarnar. Það er þó auðvelt að koma upp aðstöðu fyrir pysjuvigtun og erum við sjálf að notast við einfalda eldhúsvog og plastskál við vigtunina,“ sagði Margrét.
Margrét segir að áfram verði tekið á móti pysjum sem þurfa sérstaka aðhlynningu í afgreiðslu Sea Life Trust að Ægisgötu 2. „Þar erum við að tala um litlar og dúnaðar pysjur, olíublautar, slasaðar og aðrar sem þurfa sérstaka umönnun. Vonandi gengur þetta vel og sem flestir taki þátt. Þannig getum við fengið þær upplýsingar sem skipta mestu máli og pysjueftirlitið haldið áfram óslitið.“
„Við erum öll almannavarnir og við erum öll í pysjueftirlitinu,“ sagði Margrét að lokum.