Leitum eftir ráðgjafa/verkefnastjóra til að koma að byggðaþróun í landshlutanum. Verkefnin eru fyrst og fremst á sviði atvinnu-, ferða-, nýsköpunar- og menningarmála.
Ráðgjafi mun annast verkefnastjórnun og ráðgjöf til stofnanna, fyrirtækja og einstaklinga á Suðurlandi en með áherslu á Vestmannaeyjar. Verkefni ráðgjafa eru fyrst og fremst á sviði byggðaþróunar og felur starfið í sér náið samstarf við aðra ráðgjafa á vegum Samtaka Sunnlenskra Sveitafélaga.
Helstu verkefni:
Aðstoð við gerð rekstrar- og viðskiptaáætlana.
Aðstoð við verkefnastjórnun, markaðsgreiningar og áætlanagerð.
Kynna Uppbyggingarsjóð Suðurlands, veita ráðgjöf og handleiðslu við mótun umsókna í sjóðinn.
Vinna að samningagerð og eftirfylgd styrktra verkefna úr sjóðnum.
Menntun og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Samskipta- og skipulagshæfni.
Þekking, innsæi og áhugi á ferðaþjónustu, atvinnu- og byggðaþróun.
Gott er að hafa hagnýta starfsreynslu, s.s. á sviði ferðaþjónustu, verkefnastjórnunar, rekstrar- og vöruþróunar.
Færni í ræðu og riti á íslensku og ensku, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.
Lögð er áhersla á frumkvæði, jákvæðni og metnað í starfi.
Umsókn skal innihalda kynningarbréf og starfsferilsskrá og merkt Ráðgjafi, Þekkingarsetur Vestmannaeyja. Umsóknum skal skilað í umslagi til Þekkingarseturs Vestmannaeyja, að Strandvegi 50, 900 Vestmannaeyjum eða rafrænt á netfangið pmj@eyjar.is.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 2016.
Nánari upplýsingar veitir: Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja í síma 694-1006 eða með fyrirspurn á netfangið pmj@eyjar.is.