Í tæp 3 ár hefur Þekkingarsetur Vestmannaeyja staðið fyrir mánaðarlegum erindum um sjávarútveg, þar sem tæplega 130 aðilum sem tengjast sjávarútvegi í Eyjum er boðin þátttaka. Ein afleiðing COVID19 er sú að við höfum þurft að gera hlé á erindum á þessu ári að mestu leyti. Við viljum reyna að halda vettvanginum lifandi og viljum því gera tilraun með að færa okkur yfir á internetið meðan ástandið er eins og það er. Húsrúm hefur verið takmarkandi þáttur og því höfum við boðið fólki í sjávarútvegi. Þar sem þetta erindi verður á internetinu þá ætlum við að hafa erindið opið öllum. Við ætlum að nota ZOOM fjarfundaforritið til að eiga samskipti, í staðinn fyrir að hittast í Þekkingarsetrinu.
Næsta fimmtudag, 15. október kl. 12:00 mun Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri halda áhugavert erindi sem ber heitið Sjávarútvegur og þróun sjávarbyggða á Íslandi.
Þóroddur hefur haldið fjölmörg stórskemmtileg og hressandi erindi þar sem hann veltir upp áhugaverðum vinklum um byggðamál. Það er því spennandi erindi í vændum sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Um erindið: Íslenskar sjávarbyggðir uxu hratt á fyrri hluta tuttugustu aldar en á síðustu áratugum aldarinnar snérist þróun þeirra til verri vegar. Í almennri umræðu hefur því ýmist verið haldið fram að hnignun íslenskra sjávarbyggða sé að mestu leyti vegna innleiðingu kvótakerfisins eða að mestu leyti vegna þátta á borð við tæknivæðingu, erfiðar samgöngur og breyttar kröfur til afþreyingar og þjónustu sem grafið hafi undan dreifðum byggðum um allan heim. Í þessu erindi er mun margþættari tilurð og þróun íslenskra sjávarbyggða rakin og reynt að skyggnast inn í framtíð íslenskra sjávarbyggða með áherslu á áskoranir og tækifæri Vestmannaeyja.
Þóroddur var m.a. formaður starfshóps sem hafði það hlutverk að endurskoða meðferð og ráðstöfun aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir og nýttir eru m.a. til byggðaaðgerða. Í upphafi ársins skilaði starfshópurinn tillögum sínum. Um er að ræða 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund sem tekið er til hliðar fyrir úthlutun aflamarks og er ráðstafað að nýju sem atvinnu- og byggðakvótar.
Gestir erindisins geta spurt Þórodd spurninga að erindi loknu. Við upphaf erindisins þá mun Þóroddur fara yfir fyrirkomulag og framkvæmd á ZOOM.
Fyrirlesturinn verður á Zoom-tenglinum: https://eu01web.zoom.us/j/65519681478
Tími: Fimmtudagurinn 15. október, kl. 12:00. Þátttakendur geta tengst frá kl. 11.45. Erindinu mun ljúka stundvíslega kl. 13:00
Sjáumst á ZOOM
Fyrri sjávarútvegserindi er hægt að sjá á heimsíðu Þekkingarseturs Vestmannaeyja: https://www.setur.is/gagnasofn/erindi/sjavarutvegserindi/