Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki, skattfrádráttur vegna þróunarstarfs og skattafsláttur vegna fjárfestinga.
Í lok árs 2009 voru samþykkt lög á Alþingi um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki („nr. 152/2009“). Lögin kveða á um að fyrirtæki geti fengið skattfrádrátt vegna kostnaðar við rannsóknir og þróunarstarf og að fjárfestar fái skattafslátt vegna fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum. Til að skattyfirvöld veiti slíka ívilnun er gerð krafa um að Rannís veiti staðfestingu á að um nýsköpunarfyrirtæki sé að ræða í samræmi við ákvæði laganna. Gildir afgreiðslan fyrir yfirstandandi almanaksár.
Sjá nánar