Atvinnuþróunarfélag Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til atvinnuþróunar á starfssvæði sínu. Umsækjendur geta verið fyrirtæki, félög, stofnanir og einstaklingar með rekstur á Suðurlandi. Til ráðstöfunar, að þessu sinni, eru 5,0 m.kr.
Í umsókninni þarf m.a. að koma fram stutt lýsing á verkefninu, ætluðum ávinningi þess ásamt kostnaðar-, fjármögnunar- og tímaáætlun. Reglur um styrkveitingar félagsins, ásamt umsóknareyðublaði, er að finna á heimasíðu félagsins www.sudur.is
Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir 18. mars 2011.
Hlutverk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er m.a. að styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Til að rækta hlutverk sitt veitir félagið ráðgjöf og styrki til áhugaverðra verkefna.