Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004 sbr. og reglur nr. 125/2005, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu júní til ársloka 2011. Næst verður auglýst eftir umsóknum í október 2011 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2012 .
Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist mennta- og menningarmálaráðuneyti áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.
Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu tónlistarráðs innan tíu vikna frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í mennta- og menningarmálaráðuneyti eða á vef þess: menntamálaráðuneyti.is
Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 9. maí 2011
Umsóknir skal senda á póstfangið: Mennta- og menningarmálaráðuneyti, tónlistarsjóður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík