Textílmiðstöð Íslands , rannsóknir og listamiðstöð á Blönduósi
Opið hádegiserindi fimmtudaginn 14. nóvember.
Í tilefni af opnun á nýju húsnæði fyrir starfsemi Lista- og menningarfélags Vestmannaeyja mun Þekkingarsetrið bjóða upp á opið hádegiserindi þar sem Katharina Schneider, verkefnastjóri mun fara yfir tilurð og verkefni Textílmiðstöðvar Íslands sem staðsett er á Blönduósi. Textílmiðstöðin varð til við samþættingu á Textílsetri Íslands og Þekkingarsetursins á Blönduósi í byrjun árs 2019 en tilgangur Miðstöðvarinnar er m.a. að vera alþjóðleg miðstöð öflugrar rannsóknar- og þróunarstarfssemi í textílframleiðslu, textíllistum og handverki í textíl.