Þann 8. maí n.k. verður haldin ráðstefna á vegum Þekkingarseturs Vestmannaeyja. Ráðstefnan ber yfirskriftina ,,Þátttaka atvinnulífsins í rannsóknum og nýsköpun í sjávarútvegi“.
Markmið ráðstefnunnar er að örva samstarf atvinnulífsins og vísindasamfélagsins í rannsóknum. Ræddar verða ýmsar leiðir að því markmiði og hvernig tekist hefur til á undangengnum árum.
Með þessu móti vilja Vestmannaeyingar stíga fram og hvetja til opinskárrar og snarprar umræðu um málefnið. Miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi og því mikilvægt að sem flestir leggist á árarnar til að hleypa málefninu á gott skrið.