Samtök sunnlenskra sveitarfélaga boða til opinna samráðsfunda víðsvegar um Suðurland fyrir alla áhugasama, nú í upphafi vinnu við mótun umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland. Verkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum samtakanna.
Viðfangsefni fundanna er að greina helstu tækifæri og álitamál á sviði umhverfis- og auðlindamála. Einnig verða kynnt áhugaverð fordæmi í þessum efnum.
Fundurinn í Vestmannaeyjum verður miðvikudaginn 12. september kl. 11:30-13:30 í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2. Súpufundur.
Skráning fer fram á vef SASS: