Vaxtarsamningur Suðurlands. Styrkir til eflingar nýsköpunar og samkeppnishæfni atvinnulífsins á Suðurlandi. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl
Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrk til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurlandi. Starfssvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
Óskað er eftir umsóknum frá klösum (í það minnsta þrjú fyrirtæki) sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Gerð er krafa til þess að verkefnin styðji atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
Í boði eru 20 milljónir. Mótframlag verkefnisins þarf að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtækin, rannsóknar þróunar og háskólastofnanir vinna saman njóta alla jafna forgangs. Að auki verður horft til þess að verkefnin skili ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
Í umsókninni á að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands hér
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2011
Upplýsingar eru veittar hjá starfsmönnum Atvinnuþróunarfélags Suðurlands í síma 4808210, 4812961 og 4874822