Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2021 undir heitinu “Viltu hafa áhrif 2021?” Markmiðið með þessu er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á fjárhagsáætlun næsta árs. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengd bókaútgáfa, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.
Ábendingar og tillögur
Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2021, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 12. október 2020 á netfangið matthildur@vestmannaeyjar.is, eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Matthildar Halldórsdóttur.
Styrkir
Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2021, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 12. október 2020 á sama netfang eða póstfang.